1.3.2008 | 01:07
Fæðing myndar ?
Ég er í óðaönn að undirbúa það að opna vinnustofuna mína fyrir gesti og gangandi. Stefni á opnun um páskana. Ég þarf semsagt að taka til og koma sölumyndum af gólfinu, úr skúffum og úr kollinum upp á veggi. Mynni hér með á SÝNINGUNA Í HAMRABORG nokkrir dagar eftir hver að verða síðastur, endilega muna að kíkja.
Var að fá þá frábæru hugmynd að leifa ykkur að fylgjast með mynd að fæðast á netinu...þ.e.a.s. ?
Frá tómu blaði til innrömmunar, ATH myndin gæti tekið nokkra daga upp í fleiri ár að fæðast.
Athugasemdir
Frábær hugmynd verður gaman að geta fylgst með verkum þínum darling svona þegar maður er í burtu
Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 16:09
Já, mjög góð hugmynd. Það er gaman að sjá hvað liggur að baki fullgerðri mynd.
Laufey Eyþórsdóttir, 1.3.2008 kl. 19:06
góð hugmynd hjá þér ! tíminn í verkum finnst mér alltaf spennandi.
Blessi þig á laugardagskvöldi !
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.3.2008 kl. 19:14
æðisleg hugmynd. ég veit það af eigin reynslu að það er rosalega gaman að fylgjast með myndunum þínum í fæðingu og svo spennandi að sjá þær síðan á sýningu.....
Sigrún Sigurðardóttir, 4.3.2008 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.