28.2.2008 | 01:31
Helgarfrí
Ég skrapp í bæinn (RVK) á föstudaginn til að hitta Sunnevu mína. Við eyddum smá í ódýrt....kíló....og fleira.? Allavega safnast þegar saman kemur og ég held að eyðslan hafi verið svolítið mikil.
Logi kom svo frá Sigló á laugardags kvöldið, svo að við notuðum (ég og Sunneva) tímann vel og héldum áfram að eiða í sparnað, Sunnudaginn fórum við öll þrjú í kolaportið, gengum Laugarveginn og kíktum á sýninguna hjá Söru frænku, flott sýning.
Og til að gera langa sögu stutta þá krafsaði ég þessa útsýnismynd á mánudaginn þegar ég og aðrir hressir farþegar Íslandsflugs fengum þetta fína útsýnisflug og Eftir sex eða sjö hringi í kringum vigur Var ég orðin flugveik! (ég hef aldrei orðið flugveik áður) Og á endanum lentum við aftur í Reykjavík.
Allavega á milli mesta hristingsins gat ég krafsað þessa fínu mynd sem mun alltaf minna mig á fyrstu flugveikina
Athugasemdir
Já það var eins gott að ég var ekki í þessari vél - en ég var annars kátur með að hafa þig hjá mér eina nótt í viðbót í borginni
Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.