27.4.2008 | 23:09
Sárt saknað!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég sakna hans svooo mikið........
Við vorum bara búin að vera saman í rúmlega ár.........
Við vorum næstum því alltaf saman, fórum saman í bíltúr, út að labba, í heimsóknir,
allt nema...nema sturtu......
ekki svo að skilja að ég væri neitt feiminn við hann eða hann við mig,
heldur vissum við bæði hvað hann þoldi......... ekki!
En eftir að hann datt í gólfið í síðasta mánuði,
fór hann að klikka og varð ekki samur aftur.
Og í síðustu viku gaf ég honum kaffi latte á Langa Manga.......
eftir það hefur hann misst máttinn hægt og rólega.....
Ég á ekki eftir að heyra í honum aftur........aldrei aftur.........
Ég verð að fá mér annan.............ég get hreinlega ekki verið án síma lengur!.........
Flokkur: Menning og listir | Breytt 28.4.2008 kl. 00:49 | Facebook
Athugasemdir
Voðalega hefur þú tengst símanum sterkum böndum elskan. Er Logi ennþá í burtu eða....?
Ylfa Mist Helgadóttir, 27.4.2008 kl. 23:42
Nei Ylfa...en ég þarf ekki að hafa Loga í vasanum þegar ég hef síma
Auk þess er Logi búinn að lofa mér nýjum síma á morgun ..............................................það er einkvað farið að þrengja að honum!??(Loga)
Marsibil G Kristjánsdóttir, 28.4.2008 kl. 00:54
mér finnst þú fyndin.............
kveðja frá Sverige
Hulda Lind Eyjólfsdóttir, 28.4.2008 kl. 09:17
það hlaut að koma að því að þú þyrftir að yngja upp........sá gamli var nú orðin soldið slappur og hættur að geta sinnt þér almennilega
Sigrún Sigurðardóttir, 28.4.2008 kl. 10:41
ææææ, ekki gott, en alltaf ok að yngja upp ef hitt er byrjað að bila.
Bless
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 18:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.